Höfundar
Þorvaldur Kristinsson
Um höfund
Þorvaldur Kristinsson er fæddur árið 1950. Hann er bókmenntafræðingur að mennt og stundaði nám í íslensku og almennum bókmenntafræðum við Háskóla Íslands en hefur einnig numið við háskóla í Bandaríkjunum og Danmörku. Síðasta aldarfjórðung hefur hann starfað sem bókmenntaritstjóri í Reykjavík.
Þorvaldur sendi frá sér bókina Veistu, ef þú vin átt – Minningar Aðalheiðar Hólm Spans (1994) og síðast Lárus Pálsson leikari (2008) sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita árið 2008.
Forlag: JPV útgáfa
Rit almenns efnis
Ævisögur:
Lárus Pálsson leikari, 2008: JPV útgáfa
Veistu ef þú vin átt – Minningar Aðalheiðar Hólm Spans, 1994: Forlagið
