Höfundar
Böðvar Guðmundsson
Um höfund
Böðvar Guðmundsson fæddist 9. janúar 1939 á Kirkjubóli í Hvítársíðu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1962 og Cand. mag. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 1969. Hann stundaði nám í Þýskalandi 1964-1965 og í Frakklandi 1972-1973. Böðvar var stundakennari við Réttarholtsskóla í Reykjavík 1962-1963, síðar við Christians Albrechts Universität í Kiel, kenndi íslensku við Menntaskólann við Hamrahlíð 1969-1974, var stundakennari við heimspekideild Háskóla Íslands 1970-1972 og kenndi við Menntaskólann á Akureyri 1974-1980. Hann var stundakennari við Leiklistarskóla Íslands 1981-1983 og íslenskur sendikennari við Háskólann í Bergen 1983-1987.
Eftir Böðvar liggja ljóðabækur, leikrit og skáldsögur. Auk þess hefur hann þýtt fjölda erlendra verka fyrir börn og fullorðna. Fyrsta bók hans, ljóðabókin Austan Elivoga, kom út árið 1964. Skáldsögur hans um ferðir Íslendinga til Vesturheims hafa vakið mikla athygli og hlaut Böðvar Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir þá síðari. Þær voru síðar færðar í sviðsbúning og settar upp í Borgarleikhúsinu leikárið 2004 - 2005. Böðvar hefur einnig samið fjöldann allan af söngtextum. Meðal þýðinga Böðvars má finna verk eftir Heinrich Böll, Roald Dahl, Michael Ende og Astrid Lindgren.
(fengið frá bokmenntir.is)
Forlag: Uppheimar
Skáldverk
Skáldsögur:
Híbýli vindanna, 1995: Mál og menning
Kanada, Where the Winds Dwell, 2000: Turnstone Press
Danmörk, Vindens hjem, 2002: PP-forlag
Lífsins tré, 2003: Mál og Menning
Danmörk, livets træ, 2003: PP-forlag
Enn er morgunn, 2009: Uppheimar
Smásögur:
Sögur úr Síðunni, 2007: Uppheimar
Bændabýli, 1990: Iðunn
Kynjasögur, 1992: Mál og menning
Sögur úr seinni stríðum, 1978: Mál og menning
Ljóð:
Alþýðusöngbókin, 2009: Uppheimar
Þrjár óðarslóðir, 1994: Mál og menning
Heimsókn á heimaslóð, 1989: Iðunn
Vatnaskil, 1986: Mál og menningBurt reið Alexander, 1971: Helgafell
Í mannabyggð, 1966: Heimskringla
Austan Elivoga, 1964: Almenna bókafélagið
Rit almenns efnis
Jónas Hallgrímsson, Ævimynd, 2007: Hraun í Öxnadal
Leikverk
Nýir tímar, 1999: Leikfélagið Sýnir
Tveir menn – ein ævi, 1995: Útvarpsleikhúsið
Kvennaskólaævintýrið, 1994: Freyvangsleikhúsið
Fátækt fólk, 1990: Leikfélag Akureyrar
Ættarmótið, 1990: Leikfélag Akureyrar/Leikfélag Íslands
Ása prests, 1989: Einleikur. Útvarpsleikhúsið
Gamli maðurinn með kvenmannsleysið, 1987:
Úr aldarannál, 1982: Litli leikklúbburinn
Þórdís þjófamóðir, 1982: Nemendaleikhúsið
Grísir gjalda, gömul svín valda, 1979:
Heimilsdraugar, 1979: Alþýðuleikhúsið
Krammagull, 1976: Alþýðuleikhúsið
Skollaleikur, 1975: Alþýðuleikhúsið
Loki þó, 1973: Leikfélag ReykjavíkurBarnabækur
Krakkakvæði, 2002: Mál og menning
