Höfundar

Páll Hersteinsson

Páll Hersteinsson

Um höfund


Páll Hersteinsson (1951-2011) lauk B.Sc. (Honour)-prófi í lífeðlisfræði frá Háskólanum í Dundee í Skotlandi árið 1975 og hlaut doktorsgráðu frá Háskólanum í Oxford í Englandi árið 1984 fyrir rannsóknir sínar á íslenska refnum. Hann var veiðistjóri árin 1985 til 1995 og prófessor við líffræðiskor Háskóla Íslands frá 1995.

Páll ritaði fjölda greina í vísindarit og fyrir almenning, sat í ritstjórnum vísindatímarita og ritaði og ritstýrði bókum fræðilegs eðlis, auk þess kom út eitt smásagnasafn eftir hann.


Skáldverk


Smásögur:


Línur, 1999: Ritverk


Rit almenns efnis


Rit almenns efnis:


Refirnir á Hornströndum, 1999: Ritverk

Enska, The Arctic Foxes of Hornstrandir, 1999: Ritverk

 

Íslensk spendýr (myndskreytingar: Baldur Hlíðberg), 2004: Mál og menning

Þingvallavatn – Undraheimur í mótun(Meðhöfundur: Pétur M. Jónasson), 2002: Mál og menning, Reykjavík

Agga Gagg: Með skollum á Ströndum, 1997: Ritverk





Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica