Höfundar
Áslaug Jónsdóttir
Um höfund
Áslaug Jónsdóttir fæddist þann 31. mars 1963. Hún ólst upp á bænum Melaleiti í Melasveit í Borgarfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983 og stundaði síðan nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1984 - 1985. Áslaug nam við Listiðnaðarskólann í Kaupmannahöfn (Skolen for Brugskunst - Danmarks designskole) frá 1985 - 1989 þegar hún útskrifaðist frá teikni- og grafíkdeild skólans. Auk þess hefur hún tekið þátt í námskeiðum í Bandaríkjunum, Svíþjóð og á Íslandi.
Frá því að hún lauk námi hefur Áslaug starfað sem myndskreytir, grafískur hönnuður, rithöfundur og myndlistamaður. Hún hefur skrifað og myndskreytt fjölda barnabóka og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Þá hefur hún haldið námskeið og fyrirlestra á ýmsum vettvangi, m.a. í Háskólanum á Akureyri, hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, hjá Ung i Færeyjum og víðar á Norðurlöndum. Áslaug hefur einnig skrifað og myndlýst barnaefni fyrir sjónvarp. Hún var fréttaritari fyrir Morgunblaðið 1996 - 1998 og pistlahöfundur og teiknari á Degi 1998. Hún hefur átt sæti í stjórnum SÍUNG, félags barnabókahöfunda, og Fyrirmyndar, félags myndskreyta, frá 2001.
Áslaug hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, m.a. hefur hún tvisvar fengið Dimmalimm verðlaunin, íslensku myndskreytiverðlaunin og hún hlaut Barnabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2002 ásamt Andra Snæ Magnasyni fyrir Söguna af Bláa hnettinum.
Forlag: Mál og menning
(fengið frá bokmenntir.is)Frekari umfjöllun:
Höfundur mánaðarins, viðtal
Leikverk
Leikrit:
Gott kvöld, 2007: Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í september
Barnabækur
Barnabækur:
Skrímsli í heimsókn (meðhöfundar: Kalle Güettler, Rakel Helmsdal): Mál og menning
Svíþjóð, Mönsterbesök: Kabusa
Færeyjar, Skrímslavitjun: BFL Bókadeild Føroya Lærarafelags
Danmörk, Monsterbesøg: Torgard
Skrímslapest, 2008 (meðhöfundar: Kalle Güettler, Rakel Helmsdal): Mál og menning
Svíþjóð, 2008, Monsterpest: Kabusa
Færeyjar, 2008, Skrímslasótt: BFL Bókadeild Føroya Lærarafelags
Danmörk, 2008, Monsterpest: Torgard
Spánn: Beascoa-Random House Mondadori
Ég vil fisk, 2007: Mál og menning
Danmörk, 2007, Jeg vil ha‘fisk!: Milik
Svíþjóð, 2007, Vill ha‘ fisk!: Kabusa
Færeyjar, 2007, Eg vil hava fisk!: BFL Bókadeild Føroya Lærarafelags
Grænland, 2007, Aalisakkamik!: Milik
Skrímsli í myrkrinu, 2007 (meðhöfundar Kalle Güettler, Rakel Helmsdal), Mál og menning
Svíþjóð, 2007, Monster i mörkret: Bonnier Carlsen
Færeyjar, 2007, Myrkaskrimsl: Bókadeildin
Danmörk, 2008, Monstre i mørket: Torgard
Spánn: Beascoa-Random House Mondadori
Stór skrímsli gráta ekki, 2006 (meðhöfundar Kalle Güettler, Rakel Helmsdal: Mál og menning
Svíþjóð, 2006, Stora monster gråter inte: Bonnier Carlsen
Færeyjar, 2006, Stór skrímsl gráta ikki: BFL Bókadeild Føroya Lærarafelags
Danmörk, 2008, Store monstre græder ikke : Forlaget Torgard
Spánn: Beascoa-Random House Mondadori
Nei! Sagði litla skrímslið, 2004 (meðhöfundar Kalle Güettler, Rakel Helmsdal): Mál og menning
Svíþjóð, 2004, Nej! Sa lilla monster: Bonnier Carlsen
Færeyjar, 2004, Nei! segði litla skrímsl: BFL Bókadeild Føroya Lærarafelags
Danmörk, 2004, Nej! Sagde Lilletrold: Sesam
Spánn: Beascoa-Random House Mondadori
Skrímsli á toppnum, 2010: Mál og menning
Ég heiti Grímar, 2008: Námsgagnastofnun
Gott kvöld, 2005: Mál og menning
Eggið, 2003: Mál og menning
Unugata, 2003: Námsgagnastofnun
Sex ævintýri, 1998: Mál og menning
Prakkarasaga, 1996 (meðhöfundur Sigurborg Stefánsdóttir): Mál og menning
Einu sinni var raunamæddur risi, 1995: Mál og menning
Á bak við hús – Vísur Önnu, 1993: Mál og menning
Fjölleikasýning Ástu, 1991: Mál og menning
Stjörnusiglingin, 1991: Mál og menning
Gullfjöðrin, 1990: Mál og menning
