Höfundar
Auður Jónsdóttir
Um höfund
Auður Jónsdóttir er fædd 30. mars 1973. Hún starfar sem rithöfundur og sjálfstæður blaðamaður og hefur skrifað greinar, pistla og viðtöl fyrir ýmis tímarit og dagblöð. Smásaga hennar, „Gifting“, birtist í tímaritinu Andblæ haustið 1997 og fleiri smásögur eftir hana hafa birst í blöðum og safnbókum síðan.
Fyrsta skáldsaga Auðar, Stjórnlaus lukka (1998), var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1998. Hún hefur síðan sent frá sér fleiri skáldsögur, auk bóka fyrir börn og unglinga, meðal annars bókina Skrýtnastur er maður sjálfur (2002) þar sem hún dregur upp mynd af afa sínum, Halldóri Laxness. Skáldsaga Auðar, Fólkið í kjallaranum, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2004 og Tryggðarpantur var tilnefnd til sömu verðlauna 2006. Auður var valin „hirðskáld“ Borgarleikhússins 2009.
Forlag: Mál og menning.
(fengið frá: http://bokmenntir.is/)
Skáldverk
Skáldsögur:
Vetrarsól, 2008: Mál og menning
Þýskaland, btb/Random House
Tryggðarpantur, 2006: Mál og menning
Danmörk, Tiderne Skifter
Svíþjóð, Kabusa Böcker
Fólkið í kjallaranum, 2004: Mál og menning
Danmörk, Dem i kælderen, 2006: Tiderne Skifter
Svíþjóð, Folket i kjällaren, 2007: Kabusa Böcker
Kvikmyndaréttur seldur til: Trollakirkja/TC Films
Annað líf, 2000: Mál og menning
Stjórnlaus lukka, 1998: Mál og menning
Barnabækur
Gagga og Ari, 2003: Námsgagnastofnun
Skrýtnastur er maður sjálfur, 2002: Mál og menning
Algjört frelsi, 2001 (meðhöfundur: Þórarinn Leifsson): Mál og menning
