Höfundar

Guðni Th. Jóhannesson

gudni_th

Um höfund


Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur er fæddur í Reykjavík árið 1968. Hann er doktor í sagnfræði  frá Queen Mary, University of London og starfar sem lektor við Háskólann í Reykjavík. Guðni hefur skrifað fjölda greina og bóka um sögu og sagnfræði, m.a. um landhelgismál og þorskastríð. Bók hans, Völundarhús valdsins, um stöðu forseta Íslands, stjórnarmyndanir og stjórnarslit í embættistíð Kristjáns Eldjárn, vakti verulega athygli þegar hún kom út 2005. Haustið 2006 kom út bókin Óvinir ríkisins sem fjallaði um viðleitni stjórnvalda til að vernda „innra öryggi” ríkisins, m.a. með símhlerunum og öðru eftirliti með fólki sem talið var geta ógnað þessu öryggi, einkum á árum kalda stríðsins. Fyrir bókina var Guðni tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Árið 2009 kom út bókin Hrunið – Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar. Hún var fyrsta heildarúttektin á efnahagshruninu 2008 og helstu eftirmálum þess. Sjónvarpsþáttaröð byggð á bókinni var sýnd í Sjónvarpinu haustið 2009.

Útgefandi: Forlagið



Rit almenns efnis


Rit almenns efnis:


Hrunið: Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar, 2009 : JPV

Troubled Waters: Cod War, Fishing Disputes, and Britains Fight for the Freedom of the High Seas, 2007 : North Atlantic Fisheries History Association

Þorskastríðin þrjú: Saga landhelgismálsins 1948-1976, 2006 : Hafréttarstofnun Íslands

Óvinir ríkisins: Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi, 2006 : Mál og menning

Sympathy and Self-Interest: Norway and the Anglo-Icelandic Cod Wars, 2005 : Institut for forsvarsstudier

Völundarhús valdsins: Stjórnarmyndanir, stjórnarslit og staða forseta Íslands í embættistíð Kristjáns Eldjárns, 1968-1980, 2005 : Mál og menning




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica