Höfundar

Ari Trausti Guðmundsson

ari_trausti

Um höfund


Ari Trausti Guðmundsson (f. 1948 í Reykjavík) hefur starfað sem rithöfundur síðan 1980. Flestar bækurnar fjalla um jarðfræði, eldfjallafræði, stjörnufræði, umhverfisvernd, ferðaslóðir og fjallmennsku, samtals yfir 20 útgefnir titlar. Hann er íslenskur í föðurætt en móðurættin teygir sig til Þýskalands og Austurríkis. Ari Trausti stundaði framhaldsnám í Noregi og á Íslandi, í jarðeðlisfræði og jarðfræði. Hann er þekktur fyrir ritstörf á Íslandi en einnig sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, m.a. fyrir heimildarmyndir og þáttaraðir sem hann hefur staðið að. Enn fremur er hann meðal reyndari fjallamanna landsins, kunnur fyrir ferðir á heimskautasvæðum og framandi slóðum, auk þess að hafa unnið að sýningum og söfnum heima og heiman.

Birst hafa ljóð og smásögur eftir Ara Trausta undanfarna áratugi í tímaritum og safnritum en 2002 kom út fyrsta smásagnasafnið (Vegalínur) sem hann hlaut fyrir Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxnes. Eftir það hafa birst þrjú ljóðsöfn (2004, 2006 og 2008) og tvær skáldsögur (2006 og 2007), sú síðari heitir Land þagnarinnar.

Ari Trausti hefur hlotið nokkrar viðurkenningar, auk fyrrgreindra verðlauna, svo sem viðurkenningu frá Bókasafnssjóði fyrir fræðirit, tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna (2001) og verðlaun Rannís fyrir kynningu á vísindum til almennings (2008).

Forlag: Uppheimar


 

Skáldverk


Skáldsögur:


Sálumessa: í fimm þáttum, 2011: Uppheimar

Landið sem aldrei sefur, 2009: Uppheimar

Land þagnarinnar, 2007: Uppheimar

Leiðin að heiman, 2005: Uppheimar

 

Smásögur:


Vegalínur, 2002: Edda

 

Ljóðabækur:


Blindhæðir, 2010: Uppheimar

Borgarlínur, 2008: Uppheimar

Krókaleiðir, 2006: Uppheimar

Í leiðinni, 2004: Vaka-Helgafell


Rit almenns efnis

Fræðibækur gefnar út erlendis:


Þýskaland: Bewegung (kafli um Surtsey), 2005: ProFutura

Þýskaland: Island (kafli um náttúru), 1993 : Du Mont Reiseführer

Þýskaland: Island/Iceland, 1994: Stemmle Verlag og Mál og Menning.

Bandaríkin/England:   Encyclopedia of the Arctic (7 færslur), 2005: Routledge

Frakkland: La nature en Europe (kafli um Ísland), 1992: Bordas

Ítalía: Terra di Ghiacco, 1989: Muzeo Nat. della Montagna

 

Fræðibækur gefnar út á Íslandi á erlendum tungumálum:

 

Enska:

Focus on Iceland (ljósmyndir: Rafn Hafnfjörð), 2008: Salka

Living Earth: Outline of the Geology of Iceland, 2007: Mál og menning

Listvinahús, Icelandic ceramics 1930-1956, 2006: Arctic Books

YZT: Calligraphy of landscape (ásamt Tolla), 2003, 2004: Tolli

North light(ljósmyndir: Ragnar Th. Sigurðsson), 2002: Iceland Review

Reykjavík Into the New Millennium (ljósmyndir: Ragnar Th. Sigurðsson), 2000: Arctic Books

Reykjavík: A City For All Seasons (ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson), 1999: Forlagið

Where Nature Shines (ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson), 1999: Forlagið

Reykjanes: a Gateway to Iceland, 1998: Iceland Review Volcanoes in Iceland: 10.000 Years of Volcanic History, 1996: Vaka-Helgafell

Vatnajökull: Ice on Fire, 1996: Arctic books

Earth in Action: An Outline of the Geology of Iceland, 1996: Vaka-Helgafell

Mountaineering in Iceland, 1995: Höfundur

Light on ice: Glaciers in Iceland, 1995: Ormstunga

Waterfalls: Poetry in Motion (ljósmyndir: Páll Stefánsson), 1995: Iceland Review

Energy resources and Dams in Iceland, 1989: Icelandic National Committee on large dams

 

Þýska:

Lebende Erde : Facetten der Geologie Islands, 2007: Mál og menning

YZT: Kalligraphie der Landschaft (ásamt Tolla), 2003, 2004: Tolli

Reykjavík: Aufbruch in das neue Jahrtausend (ásamt Ragnari Th. Sigurðssyni), 2000: Arctic Books

Wo die Natur zu Hause ist (ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson), 1999: Forlagið

Reykjavík: eine Stadt für jede Jahreszeit (ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson), 1999: Forlagið Land im Werden : ein Abriß der Geologie Islands, 1996: Vaka-Helgafell

Eisvisionen: die Gletscherwelt Islands (ásamt Helmut Hinrichsen), 1995: Ormstunga

Wasserfälle: Poesie im Fluss (ásamt Páli Stefánssyni), 1995: Iceland Review


Franska:

YZT: calligraphie de paysages (ásamt Tolla), 2003, 2004: Tolli

La terre où la nature s‘éclate (ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson), 1999: Forlagið

Reykjavík: une cité des quatre saisons (ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson), 1999: Forlagið


Danska:

Reykjavík – Ind i det nye Århundrede (ljósmyndir: Ragnar Th. Sigurðsson), 2000: Arctic Books


Fræðibækur á íslensku:


Listvinahús: Guðmundur frá Miðdal: Leirmunir 1930-1956 = Icelandic Ceramics (ásamt Eiríki Þorlákssyni), 2006: Arctic Books

Eldgos 1913-2004, 2005: Vaka-Helgafell

Íslensk fjöll (ásamt Pétri Þorleifssyni), 2004: Mál og menning

Steinuð hús, 2003: Húsafriðunarnefnd ríkisins/Línuhönnun

Íslenskur jarðfræðilykill, 2002: Mál og menning

Íslenskar eldstöðvar, 2001: Vaka-Helgafell

Fólk á fjöllum: gengið á 101 tind (ásamt Pétri Þorleifssyni), 1999: Ormstunga

Reykjavík: borg allra veðra (ljósmyndir: Sigurgeir Sigurjónsson), 1999: Forlagið

Reykjavík: Á vit nýrra alda,1999: Arctic Books

Vatnajökull: frost og funi, 1996: Arctic Books

Jökulheimar, 1995: Ormstunga

Í sátt við umhverfið : fróðleikur um umhverfismál, 1994: Íslandsbanki

Landið, umhverfið og við, 1993: Námsgagnastofnun

Ferð án enda, 1992: Ísafold

Úr ríki náttúrunnar (ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni), 1991: Ísafold

Fjallabak: Hekla, Landmannalaugar & Eldgjá (ásamt Helmut Hinrichsen), 1991: Höfundur Á ferð um hringveginn, 1990: Líf og saga

Íslandseldar: eldvirkni á Íslandi í 10.000 ár, 1986: Vaka Fjallamennska (meðhöfundur Magnús T. Guðmundsson), 1983: Örn og Örlygur

Ágrip af jarðfræði Íslands, 1982: Örn og Örlygur




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica