Höfundar

Gunnar Hersveinn

GunnarHersveinn

Um höfund


Gunnar Hersveinn (Sigursteinsson) er fæddur í Reykjavík 28. mars 1960. Hann ólst upp í Voga- og Heimahverfinu. Hann lauk B.A. prófi í heimspeki og sálfræði 1986, blaðamennskunámi 1995 og hefur stundað meistaranám í kynjafræði við Háskóla Íslands.

Gunnar Hersveinn hefur gefið út fjórar ljóðabækur, skrifað leikrit og nokkrar bækur almenns eðlis og hefur JPV útgáfa meðal annars gefið út bækur hans Gæfuspor - gildin í lífinu 2005 og Orðspor - gildin i samfélaginu 2008. Hann hefur með ritstörfum verið blaðamaður á Morgunblaðinu og kennari m.a. í framhaldsskólum og Listaháskóla Íslands.

Gunnar Hersveinn hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir skrif sín um samfélagsmál m.a. Ljósberann 2004 fyrir greinar um uppeldismál, friðarmenningu, menntun og siðfræði. Tilnefningu til Blaðamannaverðlauna 2004 fyrir skrif um mannlíf á sviði jafnréttis-, uppeldis- og menntamála og Fjölísviðurkenningu Rithöfundasambandsins 2010 fyrir bækur sem hafa sett umtalsvert mark á hérlenda þjóðfélagsumræðu.

Forlag: JPV


Skáldverk


Ljóð:

Sjöund, 2008: Höfundur

Í regnborg hljóðra húsa, 1993: Höfundur

Tré í húsi, 1989: Höfundur

Gægjugat, 1987: Höfundur


Rit almenns efnis


Rit almenns efnis:

Orðspor – gildin í samfélaginu, 2008: JPV

Ævintýr á fuglaför, texti, ljósmyndir Ragnars Axelssonar, 2007: Eimskip

Sog: sýningarskrá Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar, 2006: Listasafn Reykjanesbæjar

Skuggaföll: Portrettmyndir Kristins Ingvarssonar, 2005: Þjóðminjasafn Íslands

Gæfuspor – gildin í lífinu, 2005: JPV

Áar og niðjar Magnúsar og Sólveigar, ritstjóri, 1992

Um það fer tvennum sögum, 1990: [S.N]


Leikverk


Leikrit:

Ef (sett upp í nokkrum framhaldsskólum á Íslandi,1993)




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica