Höfundar

Andrés Indriðason

Andres

Um höfund


Andrés Indriðason er fæddur í Reykjavík 7. ágúst 1941. Hann hefur starfað sem blaðamaður, kennari, dagskrárgerðarmaður í sjónvarpi, við kvikmyndagerð og ritstörf. Hann hefur einnig þýtt fjölda bóka og þætti fyrir Sjónvarpið. Andrés varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963 og stundaði enskunám við Háskóla Íslands 1963 – 1964. Hann nam kvikmyndagerð og dagskrárgerð fyrir sjónvarp í Árósum og Kaupmannahöfn 1965 og 1966. Hann starfaði sem dagskrárgerðarmaður hjá Sjónvarpinu 1965 – 1985. Frá 1985 hefur hann starfað sem rithöfundur, lausamaður í dagskrárgerð og að kvikmyndagerð sem leikstjóri og handritshöfundur.

Andrés hefur skrifað 30 skáldsögur og tugi leikverka fyrir útvarp, sjónvarp og leiksvið (Þjóðleikhúsið og Kópavogsleikhúsið). Fyrsta bók hans, Lyklabarn, hlaut fyrstu verðlaun í barnabókasamkeppni Máls og menningar árið 1979. Önnur bók hans, Polli er ekkert blávatn, hlaut verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur sem besta frumsamda bókin árið 1981. Fyrir bókina Það var skræpa hlaut Andrés verðlaun Námsgagnastofnunar í samkeppni um létt lesefni fyrir börn árið 1984. Bækur hans hafa verið gefnar út í Þýskalandi, Sviss, Austurríki og Danmörku. Útvarpsleikrit hans hafa verið flutt á öllum Norðurlöndunum og leiknar sjónvarpsmyndir hans fyrir börn hafa verið sýndar víða um heim. Þá hefur Andrés gert leiknar kvikmyndir fyrir börn á vegum Námsgagnastofnunar, skrifað handrit og leikstýrt, og eru myndirnar notaðar sem kennsluefni, hérlendis og erlendis.

(Fengið frá bokmenntir.is)


Skáldverk


Skáldsögur:


Maður dagsins, 1982: Almenna bókafélagið



Leikverk


Sól og blíða í Paradís, 2009:  Útvarpsleikhúsið

Sannleikurinn og lífið, 2009:  Útvarpsleikhúsið

Í Undralandi, 2009:  Útvarpsleikhúsið

Steinninn, 3 verk, 2006: Útvarpsleikhúsið

Upp á æru og trú, 8 verk, 2000:  Útvarpsleikhúsið

Allt hefur sinn tíma, 1997, 1997:  Útvarpsleikhúsið

Ilmur, 1993:  Útvarpsleikhúsið

Allt í sómanum, 1991:  Útvarpsleikhúsið

Harðjaxlinn, 1989:  Útvarpsleikhúsið

Aldrei að víkja, 4 verk, 1989:  Útvarpsleikhúsið

Maðkur í mysunni, 1988:  Útvarpsleikhúsið

Lögtak, 1987: Útvarpsleikhúsið

Næturgestur, 1994: Útvarpsleikhúsið

Sæluheimar, 5 verk, 1987: Útvarpsleikhúsið

Greta Garbo fær hlutverk, 1985:  Útvarpsleikhúsið

Draumaströndin, 5 verk, 1984:  Útvarpsleikhúsið

Fimmtudagskvöld, 1984:  Útvarpsleikhúsið

Fiðrildi, 1983:  Útvarpsleikhúsið

Appelsínur, 1982:  Útvarpsleikhúsið

Aldrei er friður, 1981:  Kópavogsleikhúsið

Fitubolla, 1980:  Útvarpsleikhúsið

Elísabet, 1978:  Útvarpsleikhúsið

Köttur úti í mýri, 1974:  Þjóðleikhúsið

 

Í enskum þýðingum:


Fiðrildi (Butterfly)     Þýð. Terry A. Gunnell.       

Flutt hjá sænska útvarpinu, SR, (Fjarilen) og danska útvarpinu, DR, (Sommerfugl)

 

Næturgestur (A Visitor in the Night)   Þýð. Terry A. Gunnell 

Flutt hjá finnska útvarpinu, YLE,  (Öinen vieras) og norska útvarpinu (NRK) Nattlig gjest.

 

Ilmur (Scent)


Barnabækur


Viltu byrja með mér?, 1982, 1983: Mál og menning

Þýskaland, Wie versteckt man rote Ohren, 1982: Benziger Edition im Arena Verlag

 

Polli er ekkert blávatn, 1981: Mál og menning

Þýskaland, Ein langer Winter für Páll, 1985: Benziger Verlag Zurich

Danmörk, Páll griber ind, 1986: Sommer & Sörensen Forlag

 

Eins og skugginn, 1998: Æskan

Ævintýralegt samband, 1997: Æskan

Ilmur, 1997: Námsgagnastofnun

Gallagripir, 1995: Iðunn

Bara við tvö, 1994: Iðunn

Bara okkar á milli, 1994: Námsgagnastofnun

Líf í tuskunum, 1994: Námsgagnastofnun

Tröll eru bestu skinn, 1993: Iðunn

Allt í besta lagi, 1992: Iðunn

Bestu vinir, 1991: Iðunn

Manndómur, 1990: Mál og menning

Mundu mig ég man þig, 1990,1991: Mál og menning

Sólarsaga, 1989: Mál og menning

Sprelligosar, 1989, 1992, 1995: Námsgagnastofnun

Allveg milljón, 1988: Mál og menning

Ég veit hvað ég vil, 1988: Mál og menning

Stjörnustælar, 1987: Mál og menning

Upp á æru og trú, 1987: Mál og menning

Enga stæla,1986: Mál og menning

Með stjörnur í augum, 1986: Mál og menning

Elsku barn, 1985: Mál og menning

Bara stælar, 1985: Mál og menning

Það var skræpa, 1985, 1988, 1990, 1992: Námsgagnastofnun

Töff týpa á föstu, 1984: Mál og menning

Fjórtán...bráðum fimmtán, 1983: Mál og menning

Lyklabarn, 1979: Mál og menning



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica