Höfundar

Margrét Lóa Jónsdóttir

Margrét Lóa Jónsdóttir

Um höfund


Margrét Lóa Jónsdóttir er fædd 29. mars 1967. Hún lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík og fór síðan í Háskóla Íslands þar sem hún lagði stund á íslensku og heimspeki. Hún fór í viðbótarnám í heimspeki í háskólanum í San Sebastian á Spáni og lauk B.A. prófi 1996.

Margrét Lóa hefur aðallega skrifað ljóð en fyrsta verk hennar, ljóðabókin Glerúlfar, kom út árið 1985. Hún hefur sjálf gefið út margar af bókum sínum og myndskreytt þær. Auk ljóðabókanna hefur Margrét Lóa samið hljóðlistaverk sem flutt var í Gallerí Hlust og bóklistaverk sem sýnt var í Gallerí Barmi. Hún hefur ennfremur haldið námskeið í skapandi skrifum í samvinnu við Borgarbókasafn Reykjavíkur og haldið svipuð námskeið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Margrét Lóa ritstýrði og gaf út listatímaritið Andblæ um tveggja ára skeið.

Margrét Lóa hefur unnið mikið á listasöfnum gegnum tíðina, m.a. sem leiðsögukona um listsýningar á Kjarvalsstöðum, ennfremur starfaði hún í Norræna húsinu sem safnvörður og kynningarfulltrúi. Hún hefur líka lesið töluvert inn á hljóðbækur í Blindrabókasafni Kópavogs. Einnig hefur Margrét Lóa fengist við kennslu og þáttagerð hjá RÚV, þar sem hún hefur meðal annars fjallað um femínisma og stöðu kynjanna.

Árið 2003 kom út geisladiskurinn Hljómorð með ljóðum hennar og tónlistarmannsins Gímaldins, Gísla Magnússonar. Haustið 2001 var þeim boðið, sem fulltrúum Norræna hússins í Reykjavík, á bókamessuna í Gautaborg til að kynna diskinn.

Forlag: Salka.

(bokmenntir.is)


Skáldverk


Ljóð:


Tímasetningar, 2005: Salka

Háværasta röddin í höfði mínu, 2001: Mál og menning

Tilvistarheppni, 1996: Óskráð

Ávextir, 1991: Mál og menning

Orðafar, 1989: Höfundur

Náttvirkið, 1986: Óskráð

Glerúlfar, 1985: Höfundur

 

Þýdd ljóð í safnritum:


Enska, ljóð í Cold was that Beauty...Icelandic Nature Poetry, 2002: Salka






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica