Höfundar
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Um höfund
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson er fæddur 22. júlí 1955 á Húsavík. Hann ólst upp á Öndólfsstöðum í Reykjadal í S-Þingeyjarsýslu. Aðalsteinn Ásberg lauk verslunarprófi frá Verzlunarskóla Íslands 1974 og stúdentsprófi frá sama skóla tveimur árum seinna. Hann stundaði nám í íslensku við Háskóla Íslands veturinn 1976-1977. Hann lagði stund á tón- og leiklist og sótti ennfremur námskeið í kvikmyndahandritagerð og leikritun.
Frá 1980 hefur Aðalsteinn helgað sig ritstörfum og tónlist. Hann hefur skrifað ljóðabækur og barnabækur auk þess að þýða verk erlendra höfunda. Fyrsta verk hans var ljóðabókin Ósánar lendur sem kom út árið 1977. Aðalsteinn Ásberg var einn af frumkvöðlum tónlistarfélagsins Vísnavina og var í hljómsveitinni Hálft í hvoru. Hann hefur einnig gefið út tónlistarefni fyrir börn ásamt eiginkonu sinni Önnu Pálínu Árnadóttur sem nú er látin. Aðalsteinn Ásberg var framkvæmdastjóri Félags tónskálda og textahöfunda 1988-1998, forseti Nordisk Populærautor Union 1993-1995 og formaður Rithöfundasambands Íslands 1998 - 2006.
Forlag: Mál og menning.
(fengið frá bokmenntir.is)
Ljóð
Eyðibýli, 2004: Edda
Ísland (ensk þýðing), Abandoned Farms, 2004: Mál og menning
Einsog vonin, einsog lífið, 2006: óskráð
Hjartaborg, 2007: Dimma
Fyrir söngelskar sálir, 2006: óskráð
Eyðibýli, 2004: Edda
Draumkvæði, 1992: Dimma
Jarðljóð, 1985: Fjölvi
Fugl, 1982: Fjölvi
Gálgafrestur, 1980: Fjölvi
Förunótt, 1978: Fjölvi
Ósánar lendur, 1977: Fjölvi
Skyndivísur af skólabekk, 1976: 6. bekkur L [Verzlunarskóla Íslands]
Leikverk
Leikrit:
Ekki svona!, 1998: Flutt í Möguleikhúsinu
Sjónvarpshandrit:
Háaloftið, 1998-9: Sýnt í Ríkissjónvarpinu 1998-9
Barnabækur
Barnabækur:
Ljósin í Dimmuborg, 2002: Mál og menning
Finnland, Tummalinnan Valot, 2008: Idun
Dvergasteinn, 1991, 2001: Almenna bókafélagið
Danmörk, Dværgstenen, 2000: CDR Forlag
Brúin yfir Dimmu, 2000: Mál og menning
Finnland, Silta Tumman yli, 2006: Idun
Segðu mér og segðu...., 2009: Dimma ehf.
Romsubókin, 2005: Dimma
Rumur í Rauðhamri, 2004: Námsgagnastofnun
Robbi og félagar í sumarskapi, 1997: Samúel Ingi Þórarinsson
Furðulegt ferðalag, 1996: Dimma
Álagaeldur, 1993: Almenna bókafélagið
Glerfjallið, 1992: Almenna bókafélagið
Ævintýri úr Nykurtjörn, 1984: Þor
