Höfundar

Kristján Kristjánsson

kristjanKristjansson

Um höfund


Kristján Kristjánsson er fæddur á Siglufirði 9. febrúar 1960. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1981 og stundaði nám í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands 1982-86. Hann hefur unnið margvísleg störf, m.a. við sjómennsku og kennslu og hann var um tíma skjalavörður Héraðsskjalasafns Akraness. Kristján rekur nú bókaútgáfuna Uppheima á Akranesi.

Fyrsta bók Kristjáns var ljóðabókin Svartlist (1984). Síðan hafa komið út eftir hann fleiri ljóðabækur og skáldsögur auk leikrita sem Skagaleikflokkurinn á Akranesi hefur sett upp. Kristján var bæjarlistamaður Akraness 2002.

(bokmenntir.is)


Skáldverk


Skáldsögur:


Ár bréfberans, 1995: Iðunn

Fjórða hæðin, 1993: Iðunn

Minningar elds, 1989: Almenna bókafélagið

 

Ljóð:


Dagskrá kvöldsins, 1986: Guðmundur Örn Flosason

Spegillinn hefur ekkert ímyndunarafl, 1990: Almenna bókafélagið

Svartlist: Ljóð og mynd, 1984: Höfundur

Vistarverur, 1997: Bjartur


Þýdd ljóð í safnritum:


Þýska, ljóð í Wortlaut Island, 2000: Wirtschaftsverlag

Leikverk


Leikrit:


Alltaf má fá annað skip (Skagaleikflokkurinn, 1996): Skagaleikflokkurinn

Hlutskipti (Skagaleikflokkurinn, 2006): Óútgefið

Yfir dauðans haf (Skagaleikflokkurinn, 2000): Óútgefið





Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica