Höfundar
Árni Heimir Ingólfsson
Um höfund
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur, höfundur ævisögu Jóns Leifs, Líf í tónum, er fæddur í Reykjavík 1973. Að loknu stúdentsprófi frá MH nam hann píanóleik og tónlistarfræði við Oberlin-tónlistarháskólann (BMus., 1997) og Harvard-háskóla, þaðan sem hann lauk meistaraprófi 1999 og doktorsprófi 2003 með ritgerð sinni um sögu og þróun íslenska tvísöngsins.
Hann hefur komið fram á fjölda tónleika sem píanóleikari og kórstjóri, stofnaði Kammerkórinn Carminu árið 2004 og hefur stjórnað tónlistarflutningi á tveimur hljómdiskum, Tvísöngur (2004) og Melódía (2007), sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í flokki sígildrar tónlistar.
Árni Heimir hefur fengist við rannsóknir á íslenskri tónlistarsögu, haldið fyrirlestra í Evrópu og í Bandaríkjunum og ritað greinar m.a. í Griplu, Ritmennt, Skírni og Sögu. Hann var dósent í tónlistarfræðum við Listaháskóla Íslands 2005-2007 og er nú tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Rit almenns efnis
Ævisögur:
Jón Leifs: Líf í tónum, 2009: Mál og menning
