Höfundar
Kjartan Ragnarsson
Um höfund
Kjartan Ragnarsson er fæddur 18. september 1945 í Reykjavík. Hann lauk prófi frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur árið 1966 og var síðan í framhaldsnámi í leiklist í Póllandi 1969 til 1970. Kjartan var leikari og leikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur frá 1966 og hefur verið fastráðinn hjá sömu stofnun frá 1974. hann hefur einnig leikstýrt mikið hjá Þjóðleikhúsinu og Nemendaleikhúsinu.
Kjartan fór fljótlega að skrifa leikrit og hefur hann leikstýrt flestum verkum sínum sjálfur. Meðal leikrita eftir Kjartan má nefna Saumastofuna, Blessað barnalán, Týndu teskeiðina og Nönnu systur sem hann samdi í samvinnu við Einar Kárason. Kjartan samdi einnig leikritin Peysufatadaginn og Dampskipið Ísland fyrir Nemendaleikhúsið. Kjartan hefur gert fjölmargar leikgerðir eftir bókum, s.s. Ofvitann eftir Þórberg Þórðarson, Ljós heimsins og Höll Sumarlandsins eftir Halldór Laxness, Djöflaeyjuna eftir Einar Kárason og Evu Lunu eftir chileönsku skáldkonuna Isabel Allende. Í samvinnu við Sigríði Margréti Guðmundsdóttir gerði Kjartan einnig leikgerðirnar að Grandavegi 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur og Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness en sú leikgerð var sýnd í tveimur hlutum undir heitunum Bjartur og Ásta Sóllilja.
Kjartan hefur unnið mikið á Norðurlöndunum og leikstýrði m.a. Kirsuberjagarðinum, Stræti, Mávinum og Þremur systrum hjá nemendaleikhúsi Leiklistarskólans í Malmö, Platonov hjá Borgaleikhúsinu í Malmö og Grandavegi 7 við Borgarleikhúsið í Gautaborg. Ennfremur leikstýrði hann leikritinu Ég er meistarinn eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur í Gdansk í Póllandi.
Leikverk
Leikrit:
Týnda teskeiðin (Þjóðleikhúsið, 1977): Menningarsjóður
Enska,The Missing Teaspoon: Óútgefið handrit
Rauða spjaldið (ásamt Sigríði Margréti Guðmundsdóttur. Þjóðleikhúsið, 2003): Óútgefið
Nanna systir (meðhöfundur: Einar Kárason. Þjóðleikhúsið, 1996): Óútgefið
Dampskipið Ísland (Nemendaleikhúsið, 1991): Óútgefið
Gleðispilið (Þjóðleikhúsið, 1991): Óútgefið
Skúli Magnússon (Á vegum Reykjavíkurborgar, 1986): Óútgefið
Land míns föður: Leikrit með söngvum (Leikfélag Reykjavíkur, 1985): Leikfélag Reykjavíkur
Matreiðslunámskeiðið (Ríkissjónvarpið, 1984): Óútgefið
Skilnaður (Leikfélag Reykjavíkur, 1982): Óútgefið
Jói (Leikfélag Reykjavíkur, 1981): Óútgefið
Peysufatadagur (Nemendaleikhúsið, 1981): Óútgefið
Snjór (Þjóðleikhúsið, 1980): Óútgefið
Blessað barnalán (Leikfélag Reykjavíkur, 1977): Óútgefið
Saumastofan (Leikfélag Reykjavíkur, 1975): Óútgefið
Útvarpsleikrit:
Ekki seinna en núna (Útvarpsleikhús RÚV, 1990): Óútgefið
Leikgerðir:
Tvö hús (Nemendaleikhúsið, 2002): Óútgefið
Sjálfstætt fólk – Ásta Sóllilja (Þjóðleikhúsið, 1999): Óútgefið
Sjálfstætt fólk – Bjartur (Þjóðleikhúsið, 1999): Óútgefið
Grandavegur 7 (Þjóðleikhúsið, 1997): Óútgefið
Djöflaeyjan rís og Íslenska mafían, 1995: Leikfélag Reykjavíkur
Eva lúna (Leikfélag Reykjavíkur, 1994): Óútgefið
Höll sumarlandsins (Leikfélag Reykjavíkur, 1989): Óútgefið
Ljós heimsins (Leikfélag Reykjavíkur, 1989): Óútgefið
Ofvitinn (Leikfélag Reykjavíkur, 1979): Óútgefið
