Bókasafn mánaðarins
„Takk Nanna“
„Takk Nanna,“ segir Bryndís Loftsdóttir, þegar hún tekur fram uppáhaldsbókina úr bókasafninu sínu. Það er risastór og appelsínugul matreiðslubók eftir Nönnu Rögnvaldardóttur.
Bókasöfn eru stór hluti af heimilum flestra Íslendinga. Heimili Bryndísar Loftsdóttur á Seltjarnarnesi er engin undantekning á því. Í stofunni hennar er glæsilegt safn bóka að finna: Laxness, orðabækur og heilu hillumetrarnir af íslenskum skáldsögum. Uppáhaldsbókin hennar er samt matreiðslubók og hún er ekki til láns.
Myndataka/klipping: Þorsteinn J.
