Tíska, hönnun og byggingalist
Sérstaða núverandi tísku- og iðnhönnunar ásamt arkitektúr byggir að stórum hluta á legu landsins. Þrátt fyrir áhrif beggja vegna Atlantshafsins gerir einangrunin íslenskum hönnuðum og arkitektum kleift að þróa sinn eigin sjálfstæða stíl.
Fjölbreytt litróf landslagsins og síbreytileg áferð yfirborðsins veita tískuhönnuðum innblástur til jafns við fornar hefðir og nútímalegan lífsstíll.
Í tískuhönnuninni er notast við ýmis afbrigði lita á borð við hvítt, fjólublátt, grænt, brúnt og grátt sem í réttri birtu líkjast litum í íslenska hálendinu. Bryddingarborðar og skrautlegir kragar úr tjulli minna á snjó eða jökulsprungur. Saumað er úr efni sem lítur út fyrir að hafa velkst um í sjónum, þornað í fjörunni, síðan verið teygt og ofið. Og karlmannlegum eiginleikum er tvinnað saman við kvenleg snið, eða hönnun kvöld- og hversdagsfatnaðar er þannig háttað að hægt sé að blanda einstökum hlutum saman og jafnvel frá mismunandi fatalínum. Allt þetta einkennir íslenskan fataiðnað.
Frekari upplýsingar um íslenska hönnun er að finna á vef Hönnunarmiðstöðvar.
Á döfinni:
-
Íslensk hönnun í Museum für Angewandte Kunst Frankfurt
Á sýningunni „Randscharf | On the cutting edge | Design in Island | Iceland“, sem hefst þann 22. september, getur að líta verk u. þ b. 100 Íslendinga í öllum hönnunargreinum, til dæmis:
Jónas Valtýsson, Siggi Eggertsson, Erla Sólveig Óskarsdóttir, Kristrún Hjartar, Mundi, Sruli Recht, Spaksmannsspjarir (Björg Ingadóttir & Vala Torfadóttir), Steinunn (Steinunn Sigurðardóttir), Hrafnhildur Arnardóttir a.k.a. Shoplifter, Ásta Guðmundsdóttir, Vík Prjónsdóttir (Brynhildur Pálsdóttir, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Þuríður Rós Sigurþórsdóttir), Brynjar Sigurðarson, Ragnheiður Tryggvadóttir, Anna Þórunn Hauksdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir (DöggDesign), Hrafnkell Birgisson, Óðinn Bolli Björgvinsson, Tinna Gunnarsdóttir, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og Barbara í Gongini.
Í fréttum:
-
Alrún Nordic Jewelry hlýtur viðurkenningu fyrir söluhæstu vöruna í þýskum sjónvarpsmarkaði
Alrún Nordic Jewelry hlaut á dögunum viðurkenningu fyrir söluhæstu vörun 2010 í þýska sjónvarpsmarkaðnum Questico. Fyrirtækið framleiðir og selur rúnaskartgripi hannaða af eigandanum Jóni Bjarna Baldurssyni.
Framleiðsla Alrún Nordic Jewelry er fáanleg í verslunum á Íslandi, í Norður-Ameríku, á Grænlandi, í Færeyjum, Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Varan er jafnframt seld í sjónvarpsmörkuðum í Póllandi og í Þýskalandi, en sá síðarnefndi er jafnframt sýndur í Austurríki og Sviss. Fyrirtækið hefur tekið þátt í fjölda sýninga erlendis og eru skartgripir þess fáanlegir víða um heim.
Skartgripirnir byggja á norrænni menningararfleið. Grunnhugmyndin er íslenskar bandrúnir; rúnastafir, sem mynda orð eða nafn og er skeytt saman í eitt tákn, svokallaða bandrún.
