Kvikmyndalist

Kvikmyndalist

Íslensk kvikmyndalist virðist hafa dálæti á utangarðsfólki, skrýtnum persónum sem lenda í furðulegri atburðarás, sem aftur býður upp á tækifæri til að sýna undarlegan hugarheim persónanna. Útlendingum getum stundum virst myndbirting ímyndunaraflsins í skjóli íslenskrar náttúru helst til súrrealísk. Samspil þjóðsagna og nútímans, hefða og alheimsvæðingar ásamt löngum senum og sparsemi með brellur færir hið framandi nær og tengir kvikmyndirnar við töfraraunsæið sem þekkt er úr bókmenntum. Með þessari nálgun verða til kvikmyndir sem birta áhrif úr skáldskap og listum og spegla um leið mannlegt eðli.

Frekari upplýsingar um íslenska kvikmyndalist er að finna á vefsíðu Íslensku Kvikmyndamiðstöðvarinnar:

 

Á döfinni:

Þann 28. mars sl. var opnuð í Þjóðmenningarhúsinu sýningin ISLAND::KVIKMYNDIR – sýning sem spannar kvikmyndasögu Íslands frá upphafi í kringum 1904 allt til 2009. Sýningin stendur til febrúar 2011. Síðar mun hún ferðast til Frankfurt og verður sett upp með uppfærslum í tilefni bókasýningarinnar 2011.


Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica